Reglur og trúnaður

Trúnaður við ykkur

Heyrumst.is leggur áherslu á að gæta alltaf fyllsta trúnaðar við ykkur. Þessi síða er á ykkar forsendum. Við höldum nafnleynd og þess vegna viljum við ekki að þið gefið upp rétt nafn ykkar, heldur notið notendanafn.

  • Við rekjum ekki Ip númer á tölvu.
  • ráðgjafar munu ekki hafa samband við ykkur í gegnum póst eða síma.
  • Þessi síða er ykkar síða og á ykkar forsendum.

Trúnaður við ykkur þýðir að ráðgjafar gefa engum utanaðkomandi upplýsingar um þig og trúnaður er alltaf til staðar nema í eftirfarandi tilvikum:

Ef þú lætur ráðgjafa vita um að einhver hefur gert þér mein eða mun gera það í framtíðinni og þú hefur gefið ráðgjafanum upplýsingar þar sem hægt er að finna þig að þá er ráðgjafinn skildur samkvæmt lögum að láta vita af þvi.

Ef þú eða einhver annar er í hættu að þá verðum við að láta vita.

Reglur og skilyrði

Ef þú ætlar að senda inn efni að þá verðurðu fyrst að lesa það sem fram kemur hér á síðunni og samþykkja það:

  • Notaðu aldrei þitt rétta nafn þegar þú ætlar að senda inn efni
  • Notaðu alltaf sama notendanafn og lykilorð í hvert skipti sem þú sendir efni.
  • Við þurfum bara að vita á hvaða aldri þú ert og hvort þú búir á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni og hvort þú sért stelpa eða strákur
  • Ekki segja neinum frá notendanafninu þínu eða lykilorði og haltu því bara fyrir þig.
  • Láttu okkur vita strax ef það er einhver annar sem veit um notendanafnið þitt og lykilorð.
  • Það má ekki nota efni frá öðrum.
  • Það má ekki þykjast vera einhver annar þegar maður er að senda inn efni
  • Ef þú misnotar síðuna að þá verður aðgangur á þig lokaður.
  • Við munum fara yfir efnið sem þú sendir okkur inn ef það er eitthvað sem er óviðeigandi fyrir síðuna, mun það ekki birtast.
  • Þú getur valið um hvort að bréf þitt og svar birtist á síðunni varðandi ráðgjöf. Ef þú velur að það megi ekki birta það á síðunni að þá sér enginn annar en þú svarið frá ráðgjafanum og það mun birtast á þínu svæði.
  • Ef við vitum hvernig hægt er að finna þig og við trúum því að þú eða einhver annar sé í hættu, þá verðum við að segja frá því.
  • Þú gætir valið að segja okkur nafn þitt, heimilisfang eða símanúmer vegna þess að þú VILT að ráðgjafi hjálpi þér að finna þá þjónustu og aðstoð sem þú þarft á að halda í þínu bæjarfélagi. Það getur verið læknisaðstoð, lögregla eða kannski barnaverndarnefnd. Ráðgjafinn mun mun svo láta þig hafa þessar upplýsingar til handa þér. Þín velferð og öryggi skiptir heyrumst.is miklu máli.
  • Ráðgjafar munu ekki hafa samband við þig í gegnum síma eða netfang.
  • Ef þú ert sammála þessum skilyrðum sem fram koma hér á síðunni, hakaðu þá í reitinn á nýskráningarforminu.

Login

Verndum börn gegn ofbeldi